Nýtt efni frá SAFT / Heimili og skóla – landssamtök foreldra

Kæru skólastjórnendur og foreldrar/forráðamenn.

 

Nú í byrjun nýs árs mun SAFT dreifa á alla nemendur í 4. bekk Andrésar Andar  blaði um samskipti á netinu, en þar er m.a. farið yfir öryggisógnir, samfélagsmiðla og neteinelti svo dæmi séu tekin. Efnið var samið í samstarfi við útgefendur Andrésar Andar á Norðurlöndunum og hefur blaðið verið gefið út á norrænum tungumálum.  

Nemendur í 1. bekk fá eintak af nýjum foreldrabæklingi „Ung börn og snjalltæki“ en þar er meðal annars fjallað um fyrstu kynni barna af snjalltækjum.  

Við hvetjum skólastjórnendur/kennara til að dreifa Andrésblöðunum á alla nemendur í 4. bekk og setja eintak af „Ung börn og snjalltæki“ í „töskupóst“ hjá öllum nemendum í 1. bekk og biðja alla foreldra að kynna sér efnið með börnum sínum.  

Samhliða munum við dreifa veggspjöldum um hatursorðræðu og heilræðum um dreifingu myndefnis á netinu ásamt lestrarbókum fyrir yngsta stig og miðstig, sem vonandi rata á bókasafnið og/eða í verkfærakistu kennara. 

sjá kynningu hérna…..

Kveðja, 

SAFT / Heimili og skóli – landssamtök foreldra

 

 

 

 

 

 

 

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.