Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Laugardaginn 7. janúar klukkan 13-15
Við bjóðum krakka og fjölskyldur velkomin á opið tækni- og tilraunaverkstæði í Spönginni. Þar munu leiðbeinendur Kóder verða boðnir og búnir að aðstoða gesti við að prófa sig áfram með og læra um smátölvuna Raspberry Pi, Minecraft forritun, Scratch, sem er einfalt forritunarmál sem hentar yngstu börnunum vel, og ýmislegt fleira. Ekki er um eiginlegt námskeið að ræða heldur tækifæri fyrir krakka, og ekki síst forráðamenn þeirra, að kynnast, fikta og læra saman um spennandi tækni og forritun og hvað sé hægt að skapa með henni.
Námskeiðin sem Kóder hafa boðið upp á eru flest fyrir 6-14 ára en bæði yngri og eldri tæknigrúskurum er sannarlega velkomið að koma og fikta og kynnast því sem samtökin hafa upp á að bjóða.
Samtökin Kóder hafa staðið fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga í ýmiss konar forritun og starfa þau af mikilli hugsjón um að öll börn eigi að hafa greiðan aðgang að þeirri þekkingu sem felst í forritun – tæknikunnáttu og tæknilæsi. Borgarbókasafnið deilir þeirri hugsjón að tæknilæsi sé ákaflega mikilvægur þáttur í menntun barna og mun leitast við að styðja það á komandi misserum.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis! Nánari upplýsingar….