Menningarnótt 2018

Afmæliskaka Menningarnótt 2018 verður haldin 18. ágúst næstkomandi, sem er afmælisdagur Reykjavíkurborgar.

Það verður mikið um dýrðir að venju, leikarar, dansarar og fjöllistafólk verða með uppákomur og íbúar bjóða víða uppá dagskrá í húsagörðum og sundum. Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Setning Menningarnætur í ár fer fram á hinu nýja Hafnartorgi. Boðið verður upp á lifandi tónlist og gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér svæðið í kringum Hafnartorg og skoða sýningu af svæðinu. Þetta er einstakt tækifæri þar sem svæðinu verður lokað aftur og opnar ekki fyrr en framkvæmdum lýkur.

Meðal atriða á Menningarnótt má nefna Toppinn sem er í umsjón Listræna Umbreytisins sem er nýtt embætt Menningarnætur. Listræni Umbreytirinn að þessu sinni er Jóhann Kristófer Stefánsson, leikari. Hann mun breyta efstu hæð bílastæðahússins við Hverfisgötu 20 í “lounge rooftop bar”. Í stað bíla verður fólk, í stað ryks verða plöntur, og í stað umferðarniðs verður dönnuð house tónlist.

Lúðrasveitir munu útkljá áratugalangan ríg í battli við Tjörnina og verður barist til síðasta tóns. Þá verða Færeyingar sérlegir gestir Menningarnætur og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, færeyska hönnun, færeyskar ljósmyndir af Færeyjum og færeyskir tónlistarmenn taka lagið.

Í miðborginni verður boðið uppá þrenna stórtónleika, Tónleika Rásar 2 á Arnarhóli, Garðpartý Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og Hip hop tónleikar á Ingólfstorgi. Þá eru yfir hundrað tónlistarviðburðir um alla borg. Frítt er inná öll söfn í miðborginni sem bjóða uppá fjölbreytta dagskrá fram á kvöld. Þá verður Harpa með afar glæsilega dagskrá frá kl. 13-18. Flugeldasýningin verður á sínum stað á Austurbakka kl. 23.

Á Menningarnótt er sérstök áhersla lögð á að fjölskyldan njóti samveru, komi saman í bæinn og fari heim saman.

Hægt er að nálgast alla viðburði á Menningarnótt á vefnum menningarnott.is.

GÖTULOKANIR
Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og verður því lokuð fyrir bílaumferð frá kl. 7 að morgni til 2 eftir miðnætti. Það er gert til þess að tryggja öryggi gangandi og akandi vegfaranda á þessum fjölsóttasta hátíðardegi ársins. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast á hátíðasvæðið. Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún og í Laugardalnum þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá kl. 7.30-1.00. Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að. Hægt er að nálgast kort yfir götulokanir á vefsíðu Menningarnætur eða fá upplýsingar í símaveri Reykjavíkurborgar frá kl. 8-23 á Menningarnótt, s.411-1111.

FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT
Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til kl. 22.30. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Hægt er að finna nánari upplýsingar um leiðarkerfi þeirra vagna Strætó sem aka í miðborgina á vef Strætó.  Á Menningarnótt er boðið uppá ókeypis strætóskutlur sem aka reglulega til og frá bílastæðum við Laugardalshöll og Borgartún og að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi. Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir síðustu ár en einkunnarorð hennar eru: Leggðu fjær til að komast nær.

AÐGENGI OG ÞJÓNUSTA
Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða eru á Skúlagötu, Túngötu og við Tækniskólann. Einnig verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Sérstök salerni fyrir fatlaða eru á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu. Nánari upplýsingar eru á vef Menningarnott.is.

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.