Sumarsýning félagsmanna í Litku – myndlistarfélagi
Menningarhús Spönginni, 5. júlí – 31. ágúst 2018
Félagsmenn í Litku sýna vatnslitamyndir og olíumálverk.
Litka er félag fólks á öllum aldri sem sameinast í áhuga sínum á myndlist. Félagið var stofnað árið 2009 og hefur síðan þá haldið úti blómlegu starfi og sýnt á fjölmörgum stöðum.
Litka hefur á að skipa rúmlega hundrað félagsmönnum, hópurinn er fjölbreyttur og einstaklingarnir með ýmiss konar bakgrunn. Fjölbreytnin endurspeglast gjarnan í samsýningum hópsins, en í sumar sýnir hópur félagsmanna vatnslitamyndir og olíumálverk á Borgarbókasafninu Menningarhúsi Spönginni.
Verið öll velkomin á opnun sýningarinnar, fimmtudaginn 5. júlí kl. 17!
Nánari umsjón veitir:
Sigríður Stephensen
Sigridur.Steinunn.Stephensen@reykjavik.is