Mannfræði á krakkamáli | Sumarsmiðja – Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni Dagana 11. – 15. júní kl. 13 – 15

Skapandi vinnusmiðja fyrir 9-12 ára

Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Dagana 11. – 15. júní kl. 13 – 15
Smiðjustjóri: Sara Sigurbjörns-Öldudóttir & Nika Dubrovsky

Skráning í smiðju – Smellið hér…

Geta allir fengið að tilheyra íslenskri þjóð? Hvað sameinar Íslendinga? Hvaða máli skiptir þjóðerni? Undir handleiðslu vinna börnin eigin hugmyndir og fantasíu í myndir, kort og texta sem sett verða upp í sýningu að smiðjunni lokinni.

Í smiðjunni vinnum við á skapandi hátt með hugtakið þjóð og veltum upp spurningum og umræðukveikjum því tengdu. Í lokin setjum við upp sýningu í Spönginni á afrakstrinum. Krakkarnir vinna bæði inni og úti eftir því sem veður leyfir.

Verkefnið er hugsað út frá mikilvægi þess að hvetja börn og ungt fólk til að nýta eigin sköpunarkraft, beita gagnrýnni hugsun og draga sjálfstæðar ályktanir um uppbyggingu samfélagsins og stofnanir þess. Þannig er lagður grundvöllur að lýðræðisvitund, víðsýni og samfélagslæsi til framtíðar.

Krakkarnir setja að lokum upp sýningu á afrakstrinum í Spönginni sem er jafnframt innlegg í næstu bók Niku Dubrovsky sem er upphafsmaður verkefnisins.

peningar.png

Peningar flestra þjóða prýða konunga, þjóðarhetjur og mikilvæg trúartákn. Í vinnusmiðjunni fá krakkarnir að hanna sinn eigin gjaldmiðil en þar er engin krafa um tignarlega hönnun á gjaldmiðlinum!

Verkefnið tengist tímamótum í íslensku samfélagi og áleitnum spurningum sem þróun heimsmála vekur nú um stundir. Á sama tíma og Íslendingar fagna 100 ára fullveldisafmæli og sigri hugmyndarinnar um sjálfstæða þjóð í sjálfstæðu landi – með sterk tengsl við umhverfi sitt og aldagamla íslenska menningu – er samsetning íslensks samfélags að verða mun fjölbreyttari. Hugmyndin er að stuðla að því að hugmyndir um þjóðina séu ekki frystar í klakaböndum tímans heldur fái að þróast í samræmi við þær breytingar sem samfélag okkar tekur. Efnið og vinnusmiðjurnar sem hér um ræðir hvetja börn til að meta, velta fyrir sér og setja niður eigin „kenningar“ um þetta hugtak sem bæði sundrar og sameinar.

kort.pngKrakkarnir fá tækifæri til að teikna og kortleggja landið sitt! Landið má vera eyja í skýjunum, svæði á annarri plánetu, neðanjarðarborg eða jafnvel geimstöð sem ferðast um allan geiminn og stoppar aldrei eins og í Star Trek. 

Mannfræði fyrir krakka er fjölþjóðlegt og vaxandi samstarf mannfræðinga, menningarfræðinga, sýningarstjóra, listafólks og annarra, auk samstarfsstofnana og styrktaraðila. Aðalhöfundur bókanna og upphafsmaður samstarfsins er frumkvöðullinn og listakonan Nika Dubrovsky. Hún er af rússnesku bergi brotin en lifir og starfar í Berlín, Þýskalandi.

Sara S. Öldudóttir, félagsvísindakona og menningarstjórnandi, er tengiliður verkefnisins á Íslandi og leiðir smiðjurnar.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Borgarbókasafnið og List fyrir alla. Aðrir styrktaraðilar eru Fullveldissjóður og Goethe Institut.

Nánari upplýsingar um verkefnið á heimasíðunni www.a4kids.org

Nánari upplýsingar veitir:
Þorbjörg Karlsdóttir, verkefnastjóri barnastarfs
thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is

 

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.