Úrslitakeppni 1. deildar kvenna – mætum og styðjum stelpurnar í baráttunni
um sæti í Pepsí-deild
Meistaraflokkur kvenna mætir Þrótti Reykjavík í umspili um sæti í Pepsí-deild kvenna á næstu leiktíð. Fyrri leikur liðanna verður á Valbjarnarvelli nú á laugardaginn kl.14.00 og sá síðari á Fjölnisvelli næsta þriðjudag kl.16.30. Það lið sem nær betri úrslitum samanlagt úr leikjunum tveimur tryggir sér sæti í Pepsí-deild á næsta ári auk þess að mæta annað hvort HK/Víkingi eða KR í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil 1. deildarinnar.
Nú köllum við eftir stuðningi alls Fjölnisfólks – Allir á völlinn – Áfram Fjölnir!!!