Handknattleiksdeild Fjölnis ákvað það í vikunni að senda lið til keppni í Olís-deild kvenna næsta vetur. Fyrir áramótin var gefin út viljayfirlýsing með stuðningi allra foreldra og núverandi leikmanna og nú var enn eitt skrefið tekið í átt að þessu áhugaverða verkefni.
Kvennalið Fjölnis er mjög efnilegt og verður spennandi að fylgjast með stelpunum í baráttunni við sterkustu lið landsins. Þá hafa ennfremur verið gerðir samningar til þriggja ára við leikmenn og framtíðarleikmenn liðsins allt niður í fjórða flokk.