Kristinn Þórarinsson, sundmaður úr Fjölni, varð í þriðja sæti í 200 metra fjórsundi á Norðurlandameistaramótinu í sund sem haldið var í Alexander Dale Oen Arena í Bergen um helgina.
Kristinn synti á tímanum 2:02,02 sekúndum í úrslitasundinu, en hann synti á tímanum á 2:01,45 sekúndum í undanúrslitum. Besti tími Kristins fyrir mótið var 2:01,74 sekúndur. Þess má geta að Ólympíulágmarkið í þessari grein er 2:00,28 sekúndur.