Öðru úrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, lauk sl. miðvikudagskvöld. Kelduskóli Víkur stóð sig afar vel og er kominn í úrslit í keppninni.
Undankeppnin fór fram í Borgarleikhúsinu fyrir troðfullum sal nemenda úr átta grunnskólum sem studdu sín lið. Mikil gleði og keppnisandi ríkti í salnum og héldu kynnarnir Steiney Skúladóttir og Auðunn Lúthersson uppi fjörinu á milli atriða.
Þriðja undanúrslitakvöldið var í gærkvöldi, en mánudaginn 17. nóvember, fer úrslitakeppnin fram. Alls taka 24 skólar þátt í keppninni.