Á miðvikudaginn 30 desember 2015, daginn fyrir gamlársdag kl.18:00 fer fram val á íþróttamanni Fjölnis í hátíðarsalnum í Dalhúsum. Þetta er í 27 skipti sem valið fer fram og hvetjum við alla Fjölnismenn og Grafarvogsbúa að fjölmenna og heiðra íþróttafólkið okkar. Þetta er orðin árviss hefð og gaman að sjá hversu margir mæta á ári hverju og heiðra íþróttafólkið okkar og fara yfir árið.
Dagskrá
Kynntur er afreksmaður hverrar deildar og þeir heiðraðir sérstaklega
Fjölnismaður ársins valinn
Íþróttamaður Fjölnis valinn
Í fyrra var Arndís Ýr Hafþórsdóttir valin íþróttamaður Fjölnis en hún kemur úr frjálsíþróttadeildinni og Fjölnismaður ársins 2014 var valinn Brynjar Þór Friðriksson úr handboltadeildinni.
Hvetjum alla til að koma og heiðra afreksfólkið okkar
Áfram Fjölnir