Ísak Atli Kristjánsson og Torfi Tímoteus Gunnarsson hafa framlengt samningum sínum við Fjölni. Þeir félagar eiga báðir yfir 20 landsleiki með yngri landsliðum Íslands og vænta Fjölnismenn mikils af þeim á næstu árum.
Þeir eru hér á myndinni með Árna Hermannssyni formanni knattspyrnudeildar þegar samningarnir voru handsalaðir eftir góðan sigur Fjölnis á FH í úrslitaleik Bose mótsins á dögunum.