Innritun barna fædd árið 2011 í grunnskóla og frístundaheimili er hafin á Rafrænni Reykjavík, en hún frestaðist fyrir viku vegna tækniörðugleika. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjavíkurborgar.
Foreldrum barna sem hefja grunnskólagöngu í haust er bent á að áður en sótt er um dvöl á frístundaheimili þurfa börn að vera skráð í grunnskóla í gegnum Rafræna Reykjavík.
Skráning barna sem verða í 2.-4 bekk á næsta skólaári hefst fimmtudaginn 2. mars, en umsókn um frístundaheimili gildir fyrir eitt skólaár í senn.
Foreldrar geta leitað til þjónustuvers Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 til að fá leiðbeiningar við að skrá börnin.