Í dag var opnað fyrir innsetningu á nýjum hugmyndum fyrir verkefni Betri hverfa 2015 og er hægt að skila inn hugmyndum í einn mánuð eða til 7. nóvember. Slóðin er einfaldlega www.betrireykjavik.is.
Betri hverfi 2015 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar.
Hvað var gert á þessu ári?
Alls voru 78 verkefni kosin til framkvæmda í hverfakosningum. Íbúar sendu hins vegar inn 400 hugmyndir á vefinn Betri Reykjavík. Framkvæmdum við flest þessara verkefna er lokið eða þau eru á lokasprettinum. Nokkur stærri verkefni eru enn á undirbúningsstigi, þ.á.m. er leikvöllur á Klambratúni, stígur á milli Laugardalslaugar og tjaldsvæðisins í Laugardal og ævintýragarður í Gufunesi.
- Árbær
- Kjalarnes
- Breiðholt
- Grafarholt og Úlfarsárdalur
- Grafarvogur
- Háaleiti og Bústaðir
- Vesturbær
- Miðborg
- Laugardalur
- Hlíðar