Herrakvöld Fjölnis verður haldið föstudaginn 22. nóv. í Félagsheimili Fáks í Víðidal.
Veislustjóri verður Ari Edwald og ræðumaður kvöldsins verður sjónvarpsmaðurinn og sprelligosinn Gísli Einarsson.
Glæsilegt hlaðborð með kalkúnabringum, nautafille og gómsætu meðlæti.
Happdrætti með frábærum vinningum og uppboð með skemmtilegu ívafi.
Húsið opnar 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Miðaverð verður 7.500 kr.
Það er takmarkað miðaframboð og líkt og undanfarin ár verður uppselt og því rétt að kaupa sér miða strax.
Vilji menn tryggja sér 10 manna borð er hægt að kaupa heilt borð á 75.000 kr og það verður þá frátekið í nafni þessi sem kaupir borðið.
Hægt er að ganga frá kaupum á miðum/borðum í gegnum iðkendakerfið eða með því að senda tölvupóst á frida@fjolnir.is eða gummi@fjolnir.is og taka þá fram hversu marga miða/borð menn vilja kaupa + kortaupplýsingar (númer korts og gildistími)
Dagskrá....