Helgihald sunnudaginn 10. mars -Selmessa, Erkitýpur og ofurkonur

Grafarvogskirkja kl. 11:00 – Erkitýpur og ofurkonur

Útvarpað verður frá guðsþjónustunni. Í tilefni af alþjóðabaráttudegi kvenna, sem haldinn er 8. mars ár hvert, verður fjallað um erkitýpur og ofurkonur í Biblíuni og í veröldinni okkar auk þess sem sagt verður frá verkinu “Móðirin” eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur og hangir nú  í kapellu kirkjunnar. Sr, Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir, listakona prédika og þjóna ásamt fermingarbörnum og messuþjónum.

Hákon Leifsson organisti stjórnar tónlistinni, Ásgeir Jón Ásgeirsson spilar á gítar og Kór kirkjunnar syngur ásamt Særúnu Harðardóttur, sópran.

Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunnar á sama tíma. Umsjón hefur Pétur Ragnhildarson, æskulýðsfulltrúi.

Kaffi á eftir!

Kirkjusel kl. 13:00 – Selmessa

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir Selmessu og Helga Bragadóttir, guðfræðinemi prédikar.

Hilmar Örn Agnarsson er organisti og Vox Populi syngur.

Kaffi á eftir!

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.