Helgihald 13. janúar – Messa í Grafarvogskirkju kl. 11

Messa í Grafarvogskirkju kl. 11:00. sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjóna. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson. Fermingarbörn úr Foldaskóla og fjölskyldur þeirra eru sérstaklega boðin velkomin en eftir messu verður fundur þar sem farið verður yfir allt sem viðkemur fermingunni, sem óðfluga styttist í.
Kaffi og kleinur eftir messu!

Sunnudagaskólinn er á sínum stað á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Dans, söngvar og skemmtilegar sögur. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón og Stefán Birkisson leikur á píanó.

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Guðrún Eggertsdóttir guðfræðinemi prédikar. Vox Populi syngur og organist er Hilmar Örn Agnarsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.