Aðstoð starfsmanna kirkjugarðanna við aðstandendur yfir jólahátíðina
Á Þorláksmessu og aðfangadag milli kl. 9:00 – 15:00 eru starfsmenn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma til aðstoðar í Gufuneskirkjugarði. Þeir aðstoða fólk við að finna leiði og afhenda ratkort ef með þarf.
Skrifstofan í Gufuneskirkjugarði er með síma 585 2770 og er skrifstofan opin frá kl. 9:00 – 15:00 og geta aðstandendur fengið upplýsingar um leiði þar.