![](https://i0.wp.com/grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2015/12/Rimask%C3%B3li-%C3%AD-heims%C3%B3kn-Grafarvogskirkja-2015-33.jpg?resize=256%2C171)
Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. Syngjum jólasöngva og hlustum á jólasögu.
Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og Vox Populi leiðir söng.