Í desember 2012 skráði Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness sig til þátttöku í Grænum skrefum í starfsemi Reykjavíkurborgar. Í júní 2013 fengum við viðurkenningu fyrir Skref 1. Í desember 2013 fengum við viðurkenningu fyrir Skref 2 og í mars 2014 fengum við viðurkenningu fyrir Skref 3, fyrst allra þátttakenda. Nú er staðan þannig að við erum búin að ljúka öllu sem til þarf og bíðum spennt eftir því að fá viðurkenningu fyrir Skref 4, sem jafnframt er síðasta skrefið.
Þetta verkefni er búið að vera ákaflega skemmtilegt og hefur ýtt við flestum starfsmönnun. Flestir í það minnsta farnir að flokka meira heima hjá sér en áður var gert. Mikill samhugur hefur verið meðal starfsmanna um að standa sig vel í þessu verkefni og hefur þetta gengið átakalaust fyrir sig, þó vissulega hafi komið upp sú staða að mannskapurinn standi á gati fyrir framan rusladallana okkar alla.
Strax í upphafi lögðum við áherslu á að draga úr magni óflokkaðs sorps. Miðað við niðurstöður Græna bókhaldsins fyrir árið 2014 hefur það heldur betur gengið vel því hjá okkur er óflokkað sorp einungis 7% af öllu sorpi, rest eða 93% er því flokkuð. Þessu ber að fagna. Eins höfum við lagt áherslu á það að minnka orkunotkun, rafmagn og heitt vatn. Þar hefur okkur líka tekist vel upp eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þrátt fyrir að Skref 4 sé brátt í höfn hjá okkur munum við alls ekki leggja árar í bát heldur einbeita okkur að því að gera enn betur.
Við lítum svo á að Reykjavíkurborg, annar stærsti vinnustaður landsins, eigi að vera leiðandi í málum sem snúa að því að efla vistvænan rekstur og minnka umhverfisáhrif sveitarfélagsins. Við munum leggja okkar að marki til að styðja við þetta verkefni og hvetjum aðrar stofnanir borgarinnar til að taka þátt. Þetta er bara skemmtilegt!