Getraunakaffi Fjölnis á laugardaginn milli kl. 10:00 og 12:00 í Egilshöll. Allir velkomnir!
Við ætlum að bjóða til sannkallaðrar veislu núna laugardaginn 3.febrúar!
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, mun heiðra okkur með nærveru sinni og halda erindi í tilefni af 30 ára afmæli Fjölnis í Getraunakaffinu kl. 11:00.
Þetta er eitthvað sem enginn vill missa af.
Frábærar veitingar í boði; sérstök Fjölnis-afmæliskaka frá Myllunni, gos, kaffi, mjólk, kristall og auðvitað snúðar og vínarbrauð frá Bakarameistaranum.