Framkvæmdir vegna byggingar á nýju fimleikahúsi fyrir Fjölni eru komnar af stað við Egilshöllina. Verktakinn Spennt ehf er byrjaður að setja upp vinnubúðir og girða af vinnusvæðið. Á næstu dögum mun svo jarðvegsvinna hefjast enda ekki seinna en vænna að hefja störf því húsið á að vera tilbúið 1 ágúst 2015. Húsið kemur á grasvallarsvæðið og þar er jafnframt gert ráð fyrir fjölnota íþróttahúsi fyrir Fjölni.
Það eru því spennandi tímar framundan hjá Fjölni og ljóst að starfsemi félagsins er að aukast í Egilshöllinni.