Foldasafn verður lokað frá og með mánudeginum 17. nóvember vegna flutnings safnsins í Spöngina.
Safnið opnar síðan í nýju húsnæði í Spönginni laugardaginn 6. desember kl. 14. Gestir safnsins þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af því efni sem tekið er að láni þessa daga fram að lokun því skiladagur á því er ekki fyrr en 15. desember.
Þetta á þó ekki við um kvikmyndir á DVD-diskum, sem eru eins og áður lánaðar út í tvo daga. Að venju er hægt að skila í öllum söfnum Borgarbókasafns.