Dregið var í dag í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla og var vettvangurinn höfuðstöðvar KSÍ. Fjölnir fékk verðugan mótherjar en Grafarvogsliðið sækir KR-inga heim í vesturbæinn. Bikarmeistarar Fram sækja KV heim og mótherjar þeirra í úrslitunum í fyrra, Stjarnan, fá Þróttara í heimsókn. Leikirnir fara fram 18. og 19. júní.
Leikirnir eru: Stjarnan-Þróttur R, Keflavík-Hamar, KR-Fjölnir, KV-Fram, Víkingur R-Fylkir, Bolungarvík-ÍR, Breiðablik-Þór og ÍBV-Valur.