12. umferð Pepsídeildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld. Fjölnismenn sækja Víking heim í Fossvoginn og hefst viðureign liðanna klukkan 19.15. Þessi lið mættust í fyrstu umferð mótsins og þá fóru Grafarvogspiltar með sigur af hólmi. Ekki hefur gengið nógu vel hjá Fjölni í síðustu umferðum er liðið vann síðast sigur í 2. umferð.
Fjölnir situr í 9. sætinu með 11 stig. Þar er ástæða til að hvetja Grafarvogsbúa til að fjölmenna á leikinn í Fossvogi í kvöld og hvetja liðið áfram í harðri baráttu sem fram undan er í deildinni.