Körfuknattleikslið Fjölnis jafnaði einvígið við Skallagrím í einvígi liðanna um laust sæti í Dominosdeildinni á næsta tímabili. Staðan í rimmu liðanna er 1-1, eftir sigur Fjölnis í Borgarnesi um helgina, 85-91, í hörkuleik.
Collin Pryor fór fyrir Fjölnismanna í leiknum og skoraði 27 stig og hirti 25 fráköst. Bergþór Ægor Ríharðsson kom næstur í stigaskoruninni með 20 stig.
Þriðja viðureign liðanna verður í Dalhúsum á miðvikudagskvöld en vinna þarf þrjá leiki til þess að hreppa sæti í Dominosdeildinni á næstu leiktíð.