Á Grafarvogsdaginn, 17.maí næstkomandi verður opnuð félgsmiðstöð í Spönginni 43.
Félagsmiðstöðin mun hýsa starfsemi Korpúlfa, samtök eldri borgara í Grafarvogi, Kirkjusel Grafarvogskirkju, dagdeild fyrir heilabilaða, hárgreiðslustofu, fótaaðgerðarstofu, mötuneyti, auk þess sem áhersla verður á ýmis konarstarf með öllum aldurshópum.
Hér með er óskað eftir hugmyndum að nafni á félagsmiðstöðina. Tillögum skal skilað á midgardur@reykjavik.is fyrir 11.maí nk. Niðurstöður valnefndar verða kynntar við opnunina 17.maí þar sem vinningshafa verður veitt viðurkenning.