Við undirrituð óskum eftir því að Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar tryggi eins opnunartíma í sundlaug Grafarvogs og sundlaug Árbæjar og í öðrum sundlaugum borgarinnar.
Afgreiðslutími:
Mánudaga – föstudaga: kl. 6:30 – 22:00.
Helgar: kl. 9:00 – 22:00.
Sund er holl og góð íþrótt sem og afþreying fyrir alla, sama á hvað aldri við erum. Hverfissundlaugar eru íbúum hverfa og fjölskyldufólki mikilvægar og ekki síst er nauðsynlegt að gott aðgengi sé að hverfissundlaugum borgarinnar á kvöldin fyrir fjölskyldur með börnum sínum með ómældri gleði, samveru og góðri skemmtun sem því fylgir.
This petition will be delivered to:
- Íþrótta og Tómstundaráð Reykjavíkurborgar
- Borgarstjórn Reykjavíkur
- Íþrótta og tómstundasvið Reykjavíkurborgar
Hægt er að taka þátt með því að smella hérna…..