Árið 1965 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar að gera 8. september að árlegum degi læsis til að vekja athygli á mikilvægi læsis og lestrarfærni um allan heim. Af því tilefni, og auðvitað vegna þess að nú er skólastarf vetrarins komið á fullt, vildi ég minna okkur foreldra á að gefa okkur tíma til að lesa með krökkunum í vetur. Ég tek það fram að ég mætti sjálfur vera duglegri og ætla að taka mig á. Ekki bara fyrir krakkana, heldur ekki síður mig, því þetta er gaman. Rannsóknir sýna líka að pabbarnir skipta miklu máli í þessu. Sérstaklega fyrir strákana.
Langaði að nefna við ykkur tvennt skemmtilegt til að hafa á bak við eyrað. Í október er sérstök lestarhátíð á vegum Bókmenntaborgarinnar en UNESCO útnefndi Reykjavík með því sæmdarheiti 2011. Hátíðin heitir – Tími fyrir sögu og er tilvalin til þátttöku (sjá slóð hér að neðan).
Landsleikur í lestri, lestarævintýrið Allir lesa, hefst svo 17. okt. og lýkur 16. nóv. nk. á Degi íslenskrar tungu. Um er að ræða liðakeppni þar sem gaman er að taka þátt og fylgjast með: fjölskyldur, vinnustaðir, vinahópar og aðrir geta myndað lið og haldið lestrardagbók.
Í stuttu máli: Njótum vetrarins framundan – og munum að lesa saman!
Með kærri kveðju,
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Nánari upplýsingar um þessi verkefni er að finna á vef Bókmenntaborgarinnar http://bokmenntaborgin.is/ eða www.allirlesa.is.
Borgarbókasafnið heldur úti fjölbreyttri starfsemi sem er öllum opin: http://www.borgarbokasafn.is/