Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun flytja skrifstofu sína í félagsheimilið Borgir í Spönginni 43. Hann mun heimsækja skóla, stofnanir, íþróttafélög og fyrirtæki í hverfinu.
Þetta er í sjötta sinn sem borgarstjóri færir sig um set innan borgarinnar en hann var í Árbæjarhverfi í mars, í Breiðholti í apríl, í Hlíðum og Norðurmýri í september, í Laugardal í nóvember á síðasta ári. í janúar á þessu ári var hann í Háaleiti-Bústöðum.
Haldinn verður opinn hverfafundur með íbúum í hverfinu þriðjudaginn 19. apríl nk. Til umræðu á fundinum verður allt sem tengist hverfinu, framkvæmdir, þjónusta og hverfisskipulag verður kynnt. Hverfisskipulaginu er ætlað að auðvelda skipulag, áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin áhrif á hverfið sitt.