• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Dagur gegn einelti – Hvatningarverðlaun
Grafarvogskirkja
Korpúlfar félag eldri borgara í Grafarvogi
Árgangamót Fjölnis í knattspyrnu
Ungmennafélagið Fjölnir 
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Menningarnótt haldin í tuttugasta skipti

18 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Menningarnótt 2015Menningarnótt verður haldin í tuttugasta skipti næstkomandi laugardag 22. ágúst og fagnar því stórafmæli í ár. Í tilefni þess verður sett upp ljósmyndasýning á Austurvelli á Menningarnótt með myndum frá fyrri hátíðum. Yfirskrift Menningarnætur er „Gakktu í bæinn!“ líkt og undanfarin ár með tilvísun til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti.

Viðburðir fara fram um alla miðborg og í ár verður sérstök áhersla lögð á hin ýmsu torg. Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu.

 

Menningarnótt var fyrst haldin 1996 og á þeim tíma hefur hún vaxið í að verða stærsta hátíð sem haldin er á Íslandi með yfir 100.000 gesti og hundruði viðburða. Mikil áhersla er lögð á aðgengis- og öryggismál og koma hátt í 40 ólíkir hagsmunaaðilar að skipulagningu og samráði þar sem farið er yfir nauðsynlegar lokanir, aðstoð meðan á hátíð stendur, löggæslu og aðkomu sjúkrabíla, samgöngur og margt fleira.

Í fyrra var í fyrsta skipti boðið upp á ókeypis skutlur niður í miðborg frá stórum bílastæðum við Kirkjusand og Borgartún undir slagorðinu Leggjum fjær og komumst nær. Sú þjónusta mæltist vel fyrir og verður aftur í boði í ár. Einnig verður ókeypis í strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til kl. 23. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Dagskrá Menningarnætur lýkur eftir flugeldasýninguna um kl. 23:10.

Hægt er að kynna sér allar upplýsingar um aðgengi og lokanir á vef Menningarnæturwww.menningarnott.is.

Höfuðborgarstofa heldur utan um undirbúning, skipulagningu og framkvæmd Menningarnætur í samstarfi við önnur svið borgarinnar, stofnanir, listamenn, félagasamtök og fjölda annarra. Bakhjarlar Menningarnætur eru Landsbankinn og Vodafone.

Afrek óskast – veistu um afrekskonu?

18 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0

AfrekskonurSum afrek eru sýnileg og minnisstæð. Afrek kvenna eru þó mörg hver dulin almenningi, falin í hversdagsleikanum og hafa aldrei verið verðlaunuð. Í september verður afrekasýning kvenna á Íslandi opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður gerð grein fyrir framlagi kvenna til samfélagsins, persónulegum og pólitískum sigrum, afrekum kvenna í hversdagslífi og á opinberum vettvangi.

Reykjavíkurborg óskar nú eftir frásögnum af afrekum kvenna, sögum af konum sem hafa með beinum eða óbeinum hætti haft áhrif á eigið líf eða annarra, tekist á við erfið eða óvenjuleg verkefni eða afrekað eitthvað annað sem gaman væri að miðla til sýningargesta. 

Sýningin verður með fjölbreyttu sniði, notast verður við myndir, texta, hljóð- og myndupptökur og annað það sem fólki kann að detta í hug til að koma afrekunum sem best til skila.
Saumakona, húsfreyja, skíðameistari, jógakennari, kokkur, vélstjóri, bankastjóri, móðir, allar sögur sem þú telur að feli í sér afrek eru vel þegnar. Hafir þú upplýsingar um eitthvað sem gæti átt erindi á sýninguna væri ábending um slíkt vel þegin. Við leitum að sögum og efni á hvaða formi sem er.

Tekið verður á móti tillögum til og með 24. ágúst nk. Endilega bendið vinum, vandamönnum og samstarfsfólki á að senda ábendingar og hugmyndir um afrek kvenna á netfangið afrekasyning@reykjavik.is.

Á www.afrekskonur.is er hægt að koma sögum af afrekskonum á framfæri með Facebook-tengingu. Þá geturðu taggað afrekskonuna þína ef hún er á Facebook og skorað á vini þína að segja frá konunum í sínu lífi. Sögurnar sem fást gegnum síðuna verða einnig notaðar á sýningunni. Taktu þátt með okkur!

Afrekssögur kvenna leynast í hversdagsleikanum (Myndband).

Góður árangur Fjölnisstúlkna í strandhandbolta yngri flokka

16 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0

StrandhandboltiÍslandsmótið í strandhandbolta hjá yngri flokkum fór fram í fyrsta skipti um síðustu helgi. Stelpurnar í 3. flokki kvenna hjá Fjölni gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið kvennamegin í sínum aldursflokki og enduðu í 4. sæti í heildarkeppni 3. flokks karla og kvenna, en kynin spiluðu gegn hvort öðru.
Í úrslitaleiknum unnu stelpurnar 11-10 í hörkuleik gegn liðinu „Þrælarnir hennar Ástu“ en það lið var skipað stelpum úr U-17 ára landsliðinu. Einnig var hún Ylfa valin leikmaður mótsins kvennamegin.

Lið stelpnanna skipuðu: Andrea Jacobsen, Ólöf Ásta Arnþórsdóttir, Sara Sif Helgadóttir, Sara Dögg Hjaltadóttir, Ylfa Dögg Ástþórsdóttir, Helena Ósk Kristjánsdóttir og Kristín Lísa Friðriksdóttir

Þjálfari var Jón Brynjar Björnsson

 

Fjölnir átti góðan hóp keppenda á Unglingalandsmótinu

10 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0
SONY DSC

SONY DSC

Fjölnir átti góðan hóp keppenda í frjálsum íþróttum á Unglingalandsmótinu sem fram fór á Akureyri um verslunarmannahelgina. Alls fengu þau 6 gullverðlaun, 3 silfur og 3 brons. Mótið fór fram við góðar aðstæður á Akureyri en í frekar köldu veðri. Eftirfarandi keppendur hlutu verðlaun:

Helga Þóra Sigurjónsdóttir 15 ára fékk gull í langstökki og hástökki og silfur í 80 m grind.
Karen Birta Jónsdóttir 14 ára fékk gull í spjótkasti og hástökki og brons í 100 m hlaupi.
Dagmar Nuka Ósk Einarsdóttir 14 ára fékk gull í kúluvarpi.

Signý Hjartardóttir 13 ára fékk silfur í hástökki og brons með blandaðri sveit í boðhlaupi.
Viktor Nói Kristinsson 16 ára fékk silfur í hástökki og brons í spjótkasti.
Hermann Orri Svavarsson 16 ára fékk gull í hástökki. Birkir Örn Þorsteinsson 14 ára fékk brons í 100 m hlaupi.

Matarkistan Viðey – fræðsluganga á þriðjudag

10 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Viðey 2015Sagnfræðingarnir Sólveig Ólafsdóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir mun leiða göngu um Viðey þar sem umræðuefnið verður matur og matarmenning. Á göngu um eyjuna verða landkostir hennar rifjaðir upp og varpað ljósi á margbreytilega búskaparhætti jafnt á uppgangs– sem  niðurlægingartímum.

Spáð verður í lifnaðarhætti fyrstu ábúenda, eldamennsku innan klaustursveggja, sagt frá ræktunartilraunum Skúla fógeta og veislum þeirra Ólafs Stephensen stiftamtmanns. Hugað verður að stórbúskap Eggerts Briem, innflutningi um hafskipabryggjuna og skyggnst ofan í potta í Stöðinni.

Fólki er bent á að vera vel skóað því gengið verður út í þorpið ef veður leyfir.

Á þriðjudagskvöldum eru aukaferðir til Viðeyjar frá Skarfabakka  kl. 18:15 og 19:15.
Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn byrjar.

Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu en siglt verður heim kl. 21.00.
Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100 fyrir fullorðna og kr. 550 fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri.

Við minnum á að handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna
og í Viðeyjarstofu en handhafar Gestakorts Reykjavíkur sigla frítt.
Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.

Fjölnir sigrar KR í Dalhúsum

05 ágú 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur.

Fjölnir kallarFjöln­is­menn lögðu KR að velli 2:1 í 14. um­ferð Pepsi-deild­ar karla í knatt­spyrnu í kvöld. Leikið var í Grafar­vogi. Sig­ur­mark leiks­ins skoraði Mark Magee ný­kom­inn inn á sem varamaður á 77. mín­útu.

Leik­ur­inn byrjaði afar fjör­lega og eft­ir aðeins 4. mín­útna leik varði Þórður Inga­son frá­bær­lega frá Óskari Erni Hauks­syni úr dauðafæri.

Mín­útu síðar bruna Fjöln­is­menn upp völl­in og fá innkast sem Viðar Ari Jóns­son bakvörður tók. Bolt­ann fékk Guðmund­ur Karl Guðmunds­son sem fékk að taka á móti bolt­an­um og rölta í mak­ind­um sín­um í átt að mark­inu. Hann tók síðan frá­bært skot beint í markvink­il­inn fjær, 1:0 fyr­ir Fjölni.

Fjöln­is­menn börðust afar vel í fyrri hálfl­leik og KR-ing­ar fengu ekki mörg færi. Besta færi þeirra fékk lík­lega Gonzalo Bal­bi sem var nán­ast slopp­inn í gegn á 35. mín­útu. Hann lék á tvo varn­ar­menn Fjöln­is áður en sá þriðji náði að bjarga í horn.

Síðari hálfleik­ur­inn var keim­lík­ur þeim fyrri. KR-ing­ar voru áfram sterk­ari og upp­skáru að lok­um mark á 56. mín­útu. Þá tók Hólm­bert Aron Friðjóns­son auka­spyrnu af 25. metra færi eft­ir að brotið hafði verið á Jacob Schoop. Hólm­bert, sem er ör­fætt­ur, smellti bolt­an­un utan við vegg­inn og í nær­hornið, óverj­andi fyr­ir Þórð í mark­inu, 1:1.

Mik­il bar­átta ein­kenndi leik­inn eft­ir það þar sem KR-igar höfðu áfram yf­ir­hönd­ina.Það voru hins veg­ar Fjöln­is­menn sem skoruðu sig­ur­markið á 77. mín­útu.

Þá slapp Mark Magee, ný­kom­inn inn á sem varamaður, einn í gegn eft­ir send­ingu frá Guðmundi Karli og kláraði færið af mik­illi yf­ir­veg­un fram­hjá Sindra í mark­inu, 2:1 loka­töl­ur og sig­ur bar­áttuglaðra Fjöln­ismanna í höfn.

Heimild: MBL.is

 

1645-10-11-júníTilbSkjar            Stólpi_sidebar

 

Ágengar plöntur í borgarlandinu

04 ágú 2015
Kristjan Sigurdsson
0
trolla-_bjarnaklo_og_hvonn

Húnakló.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar ætlar að grípa til aðgerða vegna útbreiðslu trölla-, húna- og bjarnarklóa í Reykjavík.

Þetta eru plöntur af ættkvíslinni Heracleum en fundist hafa þrjár tegundir sem ganga undir ýmsum nöfnum en samkvæmt íslenskri málstöð nefnast þær: bjarnarkló (H. mantegazzianum), tröllakló (H. persicum) og húnakló (H. sphondylium).

Þær hafa sýnt sig að vera ágengar og geta breiðst hratt út í borgarlandinu. Plönturnar eru varasamar því þær innihalda efnasambönd sem geta valdið alvarlegum bruna á húð með sólarljósi.

Í sumar hefur verið unnið að því að kortleggja útbreiðslu platnanna en að því loknu verður unnin aðgerðaráætlun og útbúið fræðsluefni um hvernig best sé að bregðast við vandanum.

Borgarbúar eru hvattir til að senda Reykjavíkurborg ábendingar um fundarstaði.

 

Skráning í fermingarfræðsluna hefst í águst

29 júl 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bænahald, Bænir, Fermingar í Grafarvogi, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogskirkja, Grafarvogur, Kirkjan, Sóknarnefnd

FermingSkráning í fermingarfræðsluna hefst í águst og á þeim tíma verða send bréf til forráðafólks barna á fermingaraldri í Grafarvogi.

Öll börn sem verðra 14 ára 2016 eru velkomin í fermingarfræðsluna. Prestar kirkjunnar annast fræðsluna sem fer fram í Kirkjuselinu í Spöng og í Grafarvogskirkju. Við hittumst einu sinni í viku í kirkjunni frá 1. september – 1. desember og 11. janúar – 1. mars. Guðsþónustur eru stór hluti af fermingarfræðslunni og verða þær alla sunnudaga í kirkjunni kl. 11 og í kirkjuselinu kl. 13.

Dregið verður um fermingardaga í guðsþjónustu sunnudaginn 6. september en fermingar hefjast 6. mars og verða alla sunndaga fram yfir páska. Einnig verður fermt á annan í páskum og á skírdag.

Hlökkum til að sjá ykkur í haust!

 

 

Á bjargi byggði – Guðsþjónusta í kirkjunni 26. júlí kl. 11:00

25 júl 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bænahald, Bænir, Grafarvogur., Guðþjónusta, Sóknarnefnd

Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hákon Leifsson er organisti og forsöngvari leiðir söng.
Kaffi á könnunni.

Velkomin!

« First‹ Previous111112113114115116117Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • AUSTURMIÐSTÖÐ
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2025
www.grafarvogsbuar.is