Ánægja íbúa Reykjavíkur með þjónustu borgarinnar og umhverfi var könnuð undir lok síðasta árs og liggja niðurstöður nú fyrir. Annars vegar var gerð viðhorfskönnun á þjónustu sveitarfélagsins í heild og hins vegar þjónustu í hverfum borgarinnar.
Með skiptingu könnunarinnar eftir hverfum verður hægara um vik að bæta þjónustuna. Almennt séð voru svarendur ánægðari með þjónustu í sínu hverfi en Reykjavík í heild. Íbúar í Vesturbæ og Laugardal eru á pari við ánægju íbúa þeirra sveitarfélaga sem skoruðu hæst í heildarkönnun.
79% íbúa telja Reykjavík góðan stað til að búa á og þegar spurt er um hverfið þá telja 89% hverfið sitt góðan stað til að búa á. 57% Reykvíkinga eru ánægðir með þjónustu borgarinnar á heildina litið og hefur hlutfall ánægðra hækkað um 10 prósentustig frá árinu 2010.
Capacent sá um framkvæmd kannana og svöruðu 984 Reykvíkingar 18 ára og eldri í heildarkönnun og 1031 Reykvíkingur 18 ára og eldri í könnun um þjónustu í hverfunum. Sömu spurningar voru lagðar fyrir nema að því leyti að spurt var um Reykjavík sem heild í sveitarfélagakönnuninni en spurt um afstöðu til hverfa í seinni könnuninni. Kannanirnar voru framkvæmdar í október – desember.
Niðurstöður kannana Capacent Gallup:
- Þjónusta sveitarfélaga 2014: Reykjavík. Niðurstöður í síma- og netkönnun með 18 ára og eldri, handahófsvalinna einstaklinga úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og Þjóðskrá. Útgefið 16. janúar 2015.
- Þjónusta í hverfum Reykjavíkur 2014. Reykjavík í heild. Niðurstöður netkönnunar á viðhorfum borgarbúa til þjónustu í mismunandi hverfum 15. – 28. desember 2014. Handahófsval