Reykjavíkurborg mun innan tíðar bjóða út ýmis stærri viðhaldsverkefni í fasteignum borgarinnar. Áætlunin var kynnt í borgarráði í dag. Verja á 800 milljónum króna til 355 verkefna í 170 fasteignum borgarinnar. Þetta er annað árið í röð sem 800 milljónum er bætt við hefðbundið viðhald með sérstakri fjárveitingu á fjárfestingaáætlun.
Flest átaksverkefnanna eru viðhald skóla- og frístundamannvirkja, en til þeirra fara 688 milljónir enda eru þar flest og stærstu mannvirkin. Sérstök áhersla er lögð á regnþéttingu ytra byrðis fasteigna og er það framhald verkefna sem unnið var að á síðasta ári. Einnig verður lögð áhersla á málun innanhúss.
Meðal helstu verkefna eru endurgerð þaks Austurbæjarskóla, ný utanhússklæðning Árbæjarskóla, þakviðgerðir og ýmsar endurbætur á Breiðholtsskóla, endurnýjun þaka og þakglugga á Hagaskóla og í Hlíðaskóla hefst 1. áfangi í endurgerð kennslustofa. Þá verður útveggjaklæðning á Ingunnarskóla endurbætt, þök verða endurnýjuð á leikskólunum Nóaborg, Fálkaborg og Mýri. Jafnframt verða ýmis konar endurbætur gerðar utanhúss á leikskólunum Arnarborg og Bakkaborg. Þá verður ytra byrði Ráðhússins háþrýstiþvegið og sílanbaðað.
Í mörgum fasteignum verða gerðar ýmsar endurbætur vegna eldvarna og víða verða brunaviðvörunarkerfi endurnýjuð. Loftræsikerfi verða víða endurbætt eða endurnýjuð.
Um helgina verður auglýst eftir verktökum sem vilja vera á lista Reykjavíkurborgar þegar einstaka verkþættir eru boðnir út.
Í kynningu fyrir borgarráði í dag var sýnt hvernig fjármunir skiptast eftir hverfum, fagsviðum og iðngreinum.
Tengt efni: