Kæri Ungmennafélagi – Fjölnisfólk
Nú styttist óðum í að 18.Unglingalandsmót UMFÍ hefjist á Akureyri en eins og alltaf þá er mótið um verslunarmannahelgina.
Unglingalandsmótið er öllum opið á aldrinum 11-18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé í einhverju íþróttafélagi eða ekki.
Uppistaða Unglingalandsmótsins er íþróttakeppnin en keppt er í fleiri greinum nú en áður. Keppnisgreinar okkar að þessu sinni eru:
BADMINTON, BOCCIA, BOGFIMI, BORÐTENNIS, DANS, FIMLEIKAR, FJALLAHJÓLREIÐAR, FRJÁLSÍÞRÓTTIR, GLÍMA, GOLF, GÖTUHJÓLREIÐAR, HANDBOLTI, HESTAÍÞRÓTTIR, JUDÓ, KNATTSPYRNA, KRAFTLYFTINGAR, KÖRFUBOLTI, LISTHLAUP Á SKAUTUM, MOTOCROSS, PARKOUR, PÍLUKAST, SIGLINGAR, SKÁK, STAFSETNING, STRANDBLAK, SUND, TAEKWONDO, TÖLVULEIKUR, UPPLESTUR.
Í nokkrar hópíþróttagreinar geta einstaklingar skráð sig til keppni þrátt fyrir að hafa ekkert sérstakt lið. Við sjáum um að koma viðkomandi í lið eða búum til lið þannig að allir geti keppt á jafnréttisgrundvelli.
Einnig er mikið lagt upp úr alls konar afþreyingu frá morgni til kvölds fyrir alla aldurshópa og ekki síst fyrir krakka sem eru 10 ára og yngri og eiga ekki möguleika að taka þátt í íþróttakeppni mótsins.
Skráning á mótið fer fram á heimasíðu umfi.is og er hafin.
Þátttökugjald er kr. 6.000.- og er best að greiða það við skráningu.
Allir sem hafa greitt keppnisgjaldið geta tekið þátt í öllum viðburðum án nokkurs annars kostnaðar. Keppa má í eins mörgum keppnisgreinum og hver og einn vill og getur.
Ókeypis er fyrir þátttakendur og fjölskyldur á tjaldsvæði mótsins. Sérstakar reglur gilda á tjaldsvæðinu sem öllum ber að fara eftir. Aðgangur að rafmagni á tjaldsvæðinu en fyrir hendi en rukkað er lágmarksgjald kr.3.000.- fyrir alla helgina.
Samhliða Unglingalandsmótinu fer fram hátíðin „Ein með öllu“ á Akureyri. Unglingalandsmótið verður með sín keppnissvæði, sitt tjaldsvæði og á því verður tjaldið okkar þar sem kvöldvökurnar verða. Á sunnudagskvöldið munum við hinsvegar sameinast og halda lokakvöldið saman.
Við hvetjum allt Fjölnisfólk til að fjölmenna á Unglingalandsmótið á Akureyri, þetta er frábær fjölskyldustemming verðum með tjaldstæði merk félaginu.
Í viðhengi eru upplýsingar um Fjölnisvarning sem hægt er að kaupa, væri gaman að sem flestir ( keppendur, systkini, foreldrar…) gætu verið í einhverju merktu Fjölnir til að gera okkur sýnilegri á svæðinu og auka samheldnina.
Þau sem ætla að kaupa varning senda pöntun á fjolnirsala@gmail.com pantanir fyrir peysum þurfa að berast fyrir 17. júlí. Sjá sölublað í viðhengi.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur.
Áfram Fjölnir
Bestu kveðjur,
Málfríður Sigurhansdóttir
Íþrótta- og félagsmálastjóri
Ungmennafélagsins Fjölnir
578-2702