Jazz í hádeginu í Spönginni 22.sept | Tríó Gunnars Hilmarssonar – Ókeypis aðgangur

Jazz í hádeginu | Tríó Gunnars Hilmarssonar
Leikur lög Django Reinhardt
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Laugardaginn 22. september kl. 13.15-14.00

Tónleikarnir verða einnig í Grófinni fimmtudaginn 20. september kl. 12.15-13 og í Gerðubergi 21. september kl. 12.15-13.

Gunnar Hilmarsson Tríó (GHT) spilar swing tónlist með tveimur gítörum og kontrabassa. Innblástur að hljómgrunninnum er fenginn frá Róma-gítarleikaranum Django Reinhardt. Á fyrri hluta 20. aldar lagði Reinhardt grunninn að jazzgítarstíl sem í dag er kenndur við hann og er enn í stöðugri þróun. Hljómsveitin hefur einnig verið að máta nýrri lög við þennan búning og tekist vel til. Í janúar 2018 spilaði GHT á Djangohátíð í Amsterdam í Hörpu þeirra Hollendinga: Bimhuis, við góðar undirtektir.

Hljómsveitina skipa:
Gunnar Hilmarsson á gítar
Jóhann Guðmundsson á gítar
Leifur Gunnarsson á kontrabassa

Næstu tónleikar verða 15. 16. o g 17. nóvember í Grófinni, Gerðubergi og Spönginni. Nánar um tónleikana verður auglýst síðar. Fylgist með!

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Sími: 411 6114

 

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.