• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Dropabingó fimmtudaginn 5.maí kl 14-16

03 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bingo, Börn, Dropabingó, Dropinn, Grafarvogur, Skemmtilegt

Dropabingó_Fimmtudaginn 5. maí verður haldið fjáröflunarbingó fyrir Dropann.
Bingóið verður milli kl. 14 – 16. í sal hjá Íslenska Gámafélaginu í Gufunesi (Gamla áburðarverksmiðjan).

Glæsilegir vinningar í boði og góð skemmtun þar sem verið er að
styrkja gott málefni.

Bingóspjaldið kostar 750 kr. en 3 spjöld á 2000 kr. og svo hvert spjald á
500 kr. eftir það. Einnig verða veitingar seldar á staðnum.
Posi verður á staðnum en seðlar eru vel þegnir.

 

Dropinn, styrktarfélag barna með sykursýki starfrækir  verkefnið „Vinir Dropans“ þar sem ömmum, öfum, frænkum og frændum, eða bara öllum sem vilja sýna málefninu stuðning býðst að styrkja félagið um fjárhæð að eigin vali í gegnum heimabanka.

Dropinn hefur starfað síðan 1995. Höfuðmarkmið félagsins er að stuðla að velferð barna og unglinga með sykursýki og að miðla fræðslu og veita stuðning foreldrum barna með sykursýki. Stærsta verkefni Dropans er að standa fyrir árlegum sumarbúðum, annars vegar fyrir börn og hins vegar fyrir unglinga með sykursýki. Allt starf félagsmanna í þágu Dropans er unnið í sjálfboðavinnu og er félagið því háð styrkjum frá velunnurum til að halda starfseminni áfram.

 

 

Email, RSS Follow

Spartunnan áfram vinsæl í Reykjavík

03 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

SpartunnanFyrirspurnir um spartunnur í Reykjavík eru langt umfram væntingar. Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015.

Spartunnan er greinilega ákjósanlegur góður kostur fyrir borgarbúa. „Fyrirspurnir um spartunnur eru langt umfram væntingar, við þurftum að panta fleiri en áætlað var og von er á nýrri sendingu upp úr mánaðamótum,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg.  Spartunnan stendur sérbýlishúsum til boða og er sótt á 14 daga fresti.

Reykjavíkurborg hefur farið þá leið að bjóða íbúum að velja það þjónustustig sem hentar þeim og að greiða fyrir þjónustuna í takt við það. Þannig geta íbúar valið hvort þeir vilja nýta sér þjónustu grenndar- eða endurvinnslustöðva eða hvort þeir kjósa að endurvinnanlegur úrgangur sé sóttur frá heimilum þeirra. Á heimilum þar sem lítið fellur til af blönduðum úrgangi geta íbúar í sérbýli óskað eftir spartunnu sem er ódýrari og helmingi minni en gráa tunnan eða 120 lítrar.

Íbúar í fjölbýlum geta endurskoðað fjölda grárra tunna og fækkað þeim ef tilefni er til og greitt þannig lægri gjöld. Oft má fækka gráum tunnum í fjölbýlishúsum þar sem tunnur eru samnýttar og getur þá skapast svigrúm til að fá grænar og bláar tunnur undir endurvinnsluefni.

Blandaður úrgangur frá heimilum fer í spartunnuna eins og í gráu tunnuna. Hún er minni en sú hefðbundna og tekur 120 lítra í stað 240. Spartunnan var áður sótt á 20 daga fresti. Fyrir hirðubreytinguna voru 3.500 spartunnur sóttar á 20 daga fresti og tóku 240 lítra, það gera 80 lítrar á viku. Spartunnunni var breytt og tekur nú 120 lítra og er sótt á 14 daga fresti en það gera um 60 lítra á viku.

Spartunnan stendur öllum sérbýlum til boða og eru um 31% þeirra að nota hana. Hún er góður kostur fyrir heimili sem flokka og hafa tamið sér vistvæna neysluhætti.

Magn endurvinnsluefna vex

Blandaður úrgangur frá heimilum í Reykjavík stóð nánast í stað á milli áranna 2014 og 2015, fer úr 149 kg á íbúa í 151 kg á íbúa. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015.

Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins en í dag eru ríflega 2000 slíkar tunnur við heimili. Plastið fór úr 4,5 tonnum í janúar í 10,5 tonn í mars sem er 57% aukning.

Heildarmagn af úrgangi frá heimilum í Reykjavík var 233 kg á íbúa árið 2006 en árið 2015 hafði sú tala lækkað um 22% og var 181 kg á íbúa. Þar af voru 29 kg endurvinnsluefni svo magn blandaðs úrgangs hefur dregist saman um 35% á tæpum 10 árum.

Email, RSS Follow

Opið hús á Korpúlfsstöðum laugardaginn 7.maí kl. 13-17

03 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Gallerí Korpúlfsstaðir, Grafarvogur., Skemmtilegt, Skemmtun

Eilífðar smáblóm – Samsýning á hlöðuloftinu

Laugardaginn 7.maí frá klukkan 13.00-17.00

Listamenn taka á móti gestum á vinnustofum.

Gallerí Korpúlfsstaðir með fjölbreytt úrval listmuna.

Veitingar á kaffistofunni. Tónlistaratriði og aðrar uppákkomur.

Verið velkomin á Korpúlfsstaði, menningarsetrið við borgarmörkin.

Email, RSS Follow

Fulltrúaráðsfundur og aðalfundur SAMFOK

03 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Grafarvogur, Heimili og skóli, Samfok, Skólastarf

Ágæti fulltrúi í fulltrúaráði SAMFOK

Síðari fulltrúaráðsfundur SAMFOK verður haldinn mánudaginn 9. maí kl. 18 í Norðlingaskóla. Á fyrri fulltrúaráðsfundinn okkar í haust mætti m.a. Helgi Grímsson, nýr sviðstjóri Skóla- og frístundasviðs ásamt læsisráðgjafa og kynnti lestrarstefnu Reykjavíkurborgar.

Núna 9. maí ætlar Sif Vígþórsdóttir skólastjóri ætlar að sýna okkur skólann, fjalla um skóla án aðgreiningar og áherslur skólans varðandi börn með fjölþættan vanda, en Norðlingaskóli hefur víða fengið lof fyrir að standa sérstaklega vel að því að halda utan um þann hóp. Nýverið stóð SAMFOK í samstarf við fjölmörg önnur félagasamtök sem vinna að málefnum barna að lausnaþinginu „Börn sem passa ekki í kassa“. Sif mun einnig segja okkur frá skólaboðunardegi Norðlingaskóla sem er áhugavert fyrirbæri. Við munum síðan bjóða upp á léttar veitingar.   Gaman væri að sjá fulltrúa stjórnar og skólaráðsfulltrúa frá sem flestum skólum í Reykjavík og viljum við sérstaklega biðja þig að koma þessu áleiðis til stjórnar foreldrafélags og skólaráðsfulltrúa í þínum skóla.

Klukkan 19 hefst síðan aðalfundur SAMFOK með hefðbundnum aðalfundarstörfum. Hann ætti ekki að taka langan tíma og við hvetjum ykkur til að sitja áfram á aðalfundinum. Í viðhengi er aðalfundarboð ásamt lagabreytingum sem við biðjum þig um að senda áfram á alla foreldra í skólanum þínum. Textinn er bæði í viðhengi og hér að neðan í póstinum.

Með kærri kveðju, f.h. stjórnar SAMFOK Bryndís

Aðalfundur SAMFOK 2016

haldinn í Norðlingaskóla

mánudaginn 9. maí kl. 19.00 -20.00

 

Dagskrá:

  1. Ávarp formanns SAMFOK

Birgitta Bára Hassenstein.

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  • Skýrsla stjórnar
  • Skýrsla áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráði
  • Reikningar lagðir fram
  • Árgjald ákveðið
  • Lagabreytingar
  • Kosning stjórnarmanna
  • Kosning skoðunarmanna reikninga

 

  1. Önnur mál

 

Það vantar  tvo varamenn í stjórn til eins árs og við viljum biðja áhugasama um að senda okkur póst á samfok@samfok.is

Við vekjum athygli á að hverju og einu foreldri grunnskólabarns í Reykjavík er einnig á aðalfundinum frjálst að bjóða sig fram til stjórnarsetu í SAMFOK.

Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eru hvattir til að mæta á fundinn.

F.h. SAMFOK

Bryndís Jónsdóttir

framkvæmdastjóri

 

Vegna 5. liðs aðalfundar um lagabreytingar þá gerir stjórn SAMFOK eftirfarandi tillögur að lagabreytingum, aðrar tillögur hafa ekki borist.

6 gr.: Stjórn SAMFOKS skal skipuð a.m.k. sjö fimm foreldrum grunnskólabarna í Reykjavík. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, þrír tveir stjórnarmenn annað árið og þrír tveir hitt. Að auki skal kjósa tvo varamenn til eins árs í senn. Formaður er kosinn á aðalfundi en ð öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum og velur a.m.k. varaformann og gjaldkera. Kjörtímabil er tvö ár. Hver stjórnarmaður getur að hámarki setið tvö kjörtímabil samfleytt í stjórninni. Hver formaður getur að hámarki starfað tvö kjörtímabil samfleytt.

__________________________

Bryndís Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri SAMFOK

Háaleitisbraut 13, 2. hæð

S: 562 7720 – www.samfok.is

Við erum líka á Facebook 🙂

 

 

Email, RSS Follow

Hreinsum saman, tökum þátt og tínum rusl

01 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

Hreinsum saman 1Reykjavíkurborg efnir til hreinsunardaga 2.–7. maí og hefur opnað skráningarsíðu þar sem hægt er að velja úr opnum leiksvæðum og nágrenni. Fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að taka þátt. #hreinsumsaman.

Reykjavíkurborg tekur þátt í evrópskri hreinsunarviku með því að hvetja fólk og fyrirtæki til að hreinsa saman 2.-7. maí og borgin efnir til sérstaks hreinsunardags laugardaginn 7. maí.

Borgarbúar geta valið sér opið leiksvæði og nágrenni á skráningarsíðu og fyrirtæki geta skráð sig til leiks og fengið viðurkenningarskjal.

Reykjavíkurborg vinnur nú að því hörðum höndum að hreinsa og fegra borgina og býður nú öllum að taka þátt. Kjörið er að taka saman höndum og velja sér svæði til að fegra.

Hreinsum saman 2Öll opin leiksvæði hafa verið skráð inn á skráningarsíðuna og auðvelt að velja sér stað. Þeir sem vilja geta fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða á laugardeginum eða dagana á undan.

Email, RSS Follow

2. flokkur Fjölnis Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu

01 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

Reykjavíkurmeistarar FjölnirStrákarnir í 2 flokki karla í Fjölni urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu 2016 eftir sigur á Þrótti 3 – 2 í leik þar sem Fjölnir var sterkari aðilinn en tókst illa að klára fjölda færa í leiknum.

Mörkin fyrir Fjölni skoruðu Ægir 2 og Ingibergur Kort 1.

Liðinu er hér með óskað til hamingju með þennan árangur, vonandi er þetta byrjun á skemmtilegu sumri hjá strákunum.

Email, RSS Follow

Húsagötur sópaðar og þvegnar

29 apr 2016
Kristjan Sigurdsson
0

SóparHreinsun gatna og gönguleiða í Reykjavík gengur samkvæmt áætlun. Hreinsun forgangsleiða er lokið en í ár var byrjað á að sópa helstu stíga og stofnbrautir. „Við hreinsum fyrst þær leiðir sem flestir nota,“ segir Halldór Þór Þórhallsson, yfirverkstjóri hreinsunar hjá Reykjavíkurborg.

Undanfarna daga hefur verið unnið að forsópun á tengibrautum og í húsagötum. Eftir helgi verður síðan farið á fullt í hreinsun og þvott húsagatna. Íbúar fá tilkynningu  í pósti um hvenær þrifið verður í þeirra götu auk þess sem skilti verða sett upp daginn áður og fjarlægð að hreinsun lokinni.

Unnið er á tveimur stöðum í borginni í einu, annars vegar vestan Reykjanesbrautar og hins vegar austan hennar. Svæðin sem voru hreinsuð síðast í fyrra eru hreinsuð fyrst í ár með jafnræði í huga. Í næstu viku verður unnið í póstnúmerum 108 og 109. Sjá nánar í verkáætlun

Nánari upplýsingar > reykjavik.is/hreinsun.

Email, RSS Follow

Skemmtileg sumarnámskeið hjá Fjölni

28 apr 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Börn, Dalhús, Fermingar í Grafarvogi, Fimleikar, Fjölnir fimleikar, Fjölnir handbolti, Fjölnir körfubolti, Frjálsar íþróttir, Grafarvogur., Skólastarf, Sumarnámskeið Fjölnis
Kátir krakka á sumarnámskeiði

Kátir krakka á sumarnámskeiði

Nú er búið að opna fyrir allar skráningar á sumarnámskeið félagsins í Nóra skráningarkerfi félagsins https://fjolnir.felog.is

Allar nánari upplýsingar um sumarnámskeiðin okkar eru í skjölunum í viðhengi og á heimasíðu félagsins undir liknum SUMARNÁMSKEIÐ http://www.fjolnir.is/fjolnir/sumarnamskeid

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofufélagsins í síma 578-2700  eða með tölvupóst á skrifstofa@fjolnir.is ef ykkur vantar aðstoð við skráningu eða eruð með einhverjar fyrirspurnir.

 

 

Bestu kveðjur,

Málfríður Sigurhansdóttir,Íþrótta- og félagsmálastjóri

Ungmennafélagsins Fjölnir

 

 

 

  

Email, RSS Follow

Skólahljómsveitir í Reykjavík – Innritun f. 2016-2017

27 apr 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Krakkar, Skólahljómsveit

SkólahljómsveitTekið er á móti nýjum umsóknum í skólahljómsveitirnar fjórar í Reykjavík frá og með 29. apríl næstkomandi. Sækja þarf um í gegnum Rafræna Reykjavík – rafraen.reykjavik.is

Umsóknarfrestur er til 10. júní vegna skólaársins 2016-2017, en hægt er að skila inn umsóknum allt árið vegna yfirstandandi skólaárs hverju sinni.

Þeir sem þegar hafa reynt að sækja um vegna næsta skólaárs eru beðnir að endurtaka umsóknina inn á rétt skólaár.

Áður hefur verið opnað fyrir umsóknir í tónlistarskóla.

Sjá hér kynningarblað um skólahljómsveitirnar.

Sjá upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar um skólahljómsveitir: http://reykjavik.is/thjonusta/skolahljomsveitir

 

 

2586-10-11-apriltilbod-skjar-01Stólpi auglýsing stór II

 

Email, RSS Follow
« First‹ Previous89909192939495Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is