• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Fjölskyldustundir í Borgarbókasafninu Spönginni alla þriðjudaga kl. 14:00-5:00

18 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Borgarbókasafninu Spönginni, Börn, Grafarvogur, Krakkar, Menningarhús Spöngin, Spöngin

Fjölskyldustundir í Borgarbókasafninu Spönginni. Á MORGUN er þessi viðburður, það væri frábært að fá hann inn sem fyrst.

Við erum alla þriðjudaga kl. 14:00-5:00 með fjölskyldustundir í Borgarbókasafninu Spönginni og einu sinni í mánuði er boðið upp á fræðslu.  

Fyrirlesari frá Rauða krossinum kynnir grunnatriði í skyndihjálp og forvörnum fyrir foreldra með ung börn.

Sjá slóð hér ……

 

 

Email, RSS Follow

Guðsþjónustur í Grafarvogssöfnuði næstkomandi sunnudag

16 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bænahald, Bænir, Börn, Fermingar í Grafarvogi, Grafarvogskirkja, Grafarvogur

Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Sigurður Grétar Helgason þjóna. Fermingarbörnum úr Foldaskóla og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Eftir guðsþjónustu verður stuttur kynningarfundur með fermingarbörnum og foreldrum og Pálínuboð þar sem allir leggja eitthvað til á borðið.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Brúðuleikhús, söngvar, sögur og límmiðar. Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir hafa umsjón. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

 

 

 

 

Email, RSS Follow

Ágætu íbúar í nálægum hverfum við Íslenska Gámafélagið í Gufunesi.

15 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Grafarvogur, Íslenska Gámafélagið, Moltugerð í Gufunesi, Vond lykt í Grafarvogi

Ágætu íbúar í nálægum hverfum við Íslenska Gámafélagið í Gufunesi.

Nú er svo komið að lyktin frá moltugerð (matarúrgangsvinnslu) ÍG er orðin svo svæsin að ólíft er í hverfinu, Verið er að skoða að gefa út starfsleyfi sem heimilar þennan óskapnað við bæjardyrnar hjá okkur en heyri frá fáum hér á þessari síðu en þeir sem ég hitti á svæðinu er alveg nóg boðið. Hún Anna Sigríður Einarsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu tók þetta mál í sínar hendur um tíma en var róuð með þeim orðum að það væri verið að laga þetta. Þetta hefur ekki verið lagað og verður ekki nema þessi framleiðsla verði stöðvuð.Nokkrir íbúar hafa verið í sambandi við Heilbriðgiseftirlit Reykjavíkurborgar en þar vinna menn á hraða snigilsins og svara emailum nokkrum vikum seinna og þá helst „við finnum enga lykt“ Er ekki málið að allir sem þessi óþægindi finna reyni að koma skilningi ráðamanna á annað stig. Í dag eru a.m.k. svörin frá þeim svona:


Tilvísun í mál: 2017070215
Komdu sæll Sigfús
Íslenska Gámafélagið (ÍGF) er með gilt starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur (HER) til móttöku á úrgangi til endurvinnslu. Fram til þessa hefur jarðgerðin ekki verið tiltekin sérstaklega í starfsleyfinu enda var hún í frekar smáum stíl lengi vel. Í ljósi vaxandi umsvifa gerði HER ÍGF að sækja um sérstakt starfsleyfi fyrir jarðgerðina og er starfsleyfisumsókn til meðferðar hjá HER. Jarðgerðin hefur verið tekin út í reglubundu umhverfiseftirliti og gerðar ákveðnar kröfur varðandi hvernig staðið er að henni.


Þeim finnst sem sagt í lagi að kæfandi skítalykt liggi yfir hverfinu þegar vindátt er að vestan og norðvestan og öðrum hverfum þegar vindur blæs þangað. Reyndar er lyktin það mikil að í logni er hún stæk líka.
Algerlega óásættanlegt!!!!!!!!!!!! Eða hvað finnst íbúum Grafarvogs?????

Email, RSS Follow

Jazz í hádeginu | Íslensk dægurlög í jazzfötum | Laugardaginn 16. september kl. 13.15 – 14.00

15 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Grafarvogur, Jazz í hádeginu., Jazz í Spönginni

Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Laugardaginn 16. september kl. 13.15 – 14.00

Þór Breiðfjörð, söngur
Sunna Gunnlaugsdóttir, píanó
Leifur Gunnarsson, kontrabassi

Þór Breiðfjörð er einn mest áberandi flytjandi popp, jazz og dægurlagatónlistar um þessar mundir. Hann hefur tekið saman dagskrá af íslenskum sönglögum sem þau Sunna og Leifur aðstoða hann við að klæða í jazzgallann. Á efnisskránni eru lög sem Haukur Mortens, Jón Múli og Ellý Vilhjálms gerðu fræg. Einnig munu þau flytja áður óflutt lög eftir Ingibjörgu Þorbergs.

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og allir velkomnir.

Nánari upplýsingar veita:
Leifur Gunnarsson, listrænn stjórnandi
leifurgunnarsson@gmail.com
Sími 868-9048

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri fræðslu og miðlunar
Netfang: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is
Sími: 411-6115

 

Email, RSS Follow

Myndlistarsýning Ísabellu Leifsdóttur – Menningarhúsinu Spöng

14 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Borgarbókasafn Spöngin, Grafarvogur, Menning, Sýning

Menningarhús Spönginni, fimmtudag 14. september – laugardag 21. október
Verið velkomin á sýningaropnun 14. september kl. 17

„Hvernig líður þér þegar þú horfist í augu við alla neysluna, þegar dótið sem við gefum börnunum okkar hrannast upp allt í kringum okkur? Hvaða skilaboð erum við að senda þeim og hvers konar framtíð viljum við búa þeim? Erum við að byggja þau upp eða brjóta niður heiminn sem þau ættu að erfa? “

Þessara spurninga spyr listakonan Ísabella Leifsdóttir, sem vill með verkum sínum vekja athygli á ofgnóttinni í samfélagi okkar. Hún sýnir spegla sem hún hefur skreytt með smádóti úr plasti sem var á leið í endurvinnslu. Speglarnir eru fallegir og eigulegir munir, enda tilgangurinn að búa til verk sem fólk vill ekki farga heldur fegra heimili sín með. Einnig eru verkin áminning til neytenda um að hugsa sig um og velja vandlega áður en þeir rétta fram greiðslukortið í verslunum.

Verkin eru gerð úr leikföngum úr plasti, smáglingri og skarti sem er markaðssett fyrir börn. Stór hluti er agnarlítið smádót sem er í raun ekki nytsamlegt til endursölu og er því urðað í náttúrunni þar sem það veldur óhjákvæmilega mengun. Magnið sem kemur inn til endurvinnslustöðva er svo mikið að engin leið er að flokka og endurselja allt sem þangað berst.

Ísabella veltir líka fyrir sér hvaða skilaboð við sendum börnunum okkar með því sem við veljum að gefa þeim. „Hversvegna gefum við börnum byssur, er það til að þau geti æft sig í að fara í stríð? Hvers vegna kaupum við ógurlegt magn af förðunarvörum (gerfi og ekta), glingri og hárskrauti í bleiku og fjólubláu? Þurfa litlar stelpur að æfa sig í að gera sig sætar?“

„Ég nota spegla í grunninn og því þarf fólk bókstaflega að horfast í augu við sjálft sig og neysluna þegar það kemur á sýninguna. Allt efnið (nema málning og lím) er frá Góða hirðinum en starfsfólk þar hefur veitt mér aðgang að efni sem fer til endurvinnslu.“

Ísabella er stjórnarformaður myndlistarfélagsins Litku og hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum á vegum félagsins. Þetta er sjöunda einkasýning hennar. Hægt að sjá talsvert af verkum Ísabellu á Facebook undir La Diva Rosa og á Instagram undir @ladivarosaart og #ladivarosa

Listmenntun Ísabellu snýr að tónlist, hún lærði óperusöng í Royal Northern College of Music í Manchester á Englandi, en hefur alltaf lagt stund á myndlist með söngnum og gekk í Myndlistarskóla Kópavogs sem barn.

Ísabella verður með tvær smiðjur í tengslum við sýningu sína, þar sem gamlir hlutir á leið í ruslið fá nýtt hlutverk, nánar auglýst síðar.

Sjá hérna….

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is
s. 411 6230

 

 

Email, RSS Follow

Dans Brynju Péturs kemur í Grafarvoginn!

11 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Börn, Dalhús, dans, Dans Brynju, Dansskóli Reykjavíkur, Grafarvogur, Skemmtilegt

Dans Brynju Péturs kemur í Grafarvoginn!
Kennt í Íþróttahúsi Grafarvogs, Dalhúsum 2.

Komdu í alvöru street dans og lærðu hjá þeim bestu í faginu á Íslandi, við bjóðum upp á hópa fyrir 7-9 ára, 10-12 ára og 13 ára +. Önnin er 12 vikur, 2x í viku kosta 33.900 kr. og við erum aðilar að öllum frístundastyrkjum. Nemendasýning í lok annar.

_________________________________
Allar nánari upplýsingar og skráning:
www.brynjapeturs.is

HAUSTÖNN HEFST NÚNA!
Mikið af ókeypis prufutímum alla vikuna (11.-15. september). Sjá stundaskrá á www.brynjapeturs.is 👊

Kennslustaðir: BREIÐHOLT – LAUGARDALUR – ÁRBÆR – KÓPAVOGUR – GARÐABÆR – GRAFARVOGUR – SELTJARNARNES

Hannaðu þitt eigið dansnám! Við kennum Hiphop, Dancehall, Waacking, Top Rock, Popping, House, Break, ‘Heels Performance’, ‘Twerk-Out’ og ‘Urban Flow’ fyrir 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára +, 16 ára + og 20 / 25 ára +.

 

 

Email, RSS Follow

Eins opnunartíma í sundlaug Grafarvogs og Árbæjar eins og í öðrum sundlaugum borgarinnar

10 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Dalhús, Grafarvogslaug, Grafarvogur, Sund, Sund fyrir alla, Sundlaug Grafarvogs

Við undirrituð óskum eftir því að Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar tryggi eins opnunartíma í sundlaug Grafarvogs og sundlaug Árbæjar og í öðrum sundlaugum borgarinnar.

Afgreiðslutími:
Mánudaga – föstudaga: kl. 6:30 – 22:00.
Helgar: kl. 9:00 – 22:00.

Sund er holl og góð íþrótt sem og afþreying fyrir alla, sama á hvað aldri við erum. Hverfissundlaugar eru íbúum hverfa og fjölskyldufólki mikilvægar og ekki síst er nauðsynlegt að gott aðgengi sé að hverfissundlaugum borgarinnar á kvöldin fyrir fjölskyldur með börnum sínum með ómældri gleði, samveru og góðri skemmtun sem því fylgir.

 

This petition will be delivered to:

  • Íþrótta og Tómstundaráð Reykjavíkurborgar
  • Borgarstjórn Reykjavíkur
  • Íþrótta og tómstundasvið Reykjavíkurborgar

Hægt er að taka þátt með því að smella hérna…..

 


 

Email, RSS Follow

Skólamót Fjölnis 2017 í handbolta fyrir 1.-8. bekk

10 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Dalhús, Fjölnir handbolti, Grafarvogur, Handbolti, Rimaskóli, Skemmtilegt, Skólamót Fjölnis, Skólastarf

Þann 10. september nk. mun Skólamót Fjölnis í handbolta fara fram fyrir nemendur í 1.-8. bekk, byrjendur og lengra komna.

Allir þátttakendur eru beðnir um að mæta í íþróttafötum og í íþróttaskóm í Fjölnishúsið við Dalhús 2 á tilgreindum tíma.
Engin skráning – Bara mæta!
Kaffisala fyrir foreldra og forráðamenn.
Komdu og kepptu fyrir ÞINN SKÓLA – því
ÞAÐ ER GAMAN Í HANDBOLTA!

1. og 2. bekkur [8.fl.] – Mæting kl. 09:45 í Dalhús (leik lokið 11:00)
3. og 4. bekkur [7.fl.] – Mæting kl. 10:45 í Dalhús (leik lokið 12:00)
5. og 6. bekkur [6.fl.] – Mæting kl. 11:45 í Dalhús (leik lokið 13:00)
7. og 8. bekkur [5.fl.] – Mæting kl. 12:45 í Dalhús (leik lokið 14:00)

Verðlaun veitt í hverjum flokki!

Hlökkum til að sjá ykkur í handbolta í vetur
Þjálfarar og iðkendur HKD Fjölnis

 

Email, RSS Follow

Helgihald sunnudaginn 10. september

10 sep 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Börn, Fermingar í Grafarvogi, Grafarvogskirkja, Grafarvogur, Grafarvogur., Prestar, Safnaðarstarf, Skemmtilegt

Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og séra Grétar Halldór Gunnarsson þjóna. Fermingarbörnum úr Keldu-, Vætta og Rimaskóla og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Eftir guðsþjónustu verður stuttur kynningarfundur með fermingarbörnum og foreldrum og Pálínuboð þar sem allir leggja eitthvað til á borðið.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Brúðuleikhús, söngvar, sögur og límmiðar. Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir hafa umsjón. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Email, RSS Follow
« First‹ Previous50515253545556Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is