Oliver Aron Norðurlandameistari í skák á 30 ára afmælisdegi Fjölnis
Hinn tvítugi og efnilegi skákmeistari Fjölnis, Oliver Aron Jóhannesson varð í dag Norðurlandameistari 20 ára og yngri í skólaskák. Norðurlandamótið var að þessu sinni haldið í Finnlandi.
Oliver Aron var fjórði stigahæsti skákmaðurinn í A flokki en lét það engu skipta, tefldi af miklu öryggi og endaði mótið á 30 ára afmælisdegi Fjölnis með tveimur glæsilegum sigurskákum.
A flokkurinn var afar jafn og fyrir síðustu umferðina voru fjórir skákmenn jafnir með 3,5 vinninga. Oliver Aron náði strax góðri stöðu gegn sænskum unglingameistara í lokaskákinni og sá sigur dugði á 1. sætið. Þess má geta að árið 2013 var Oliver Aron kjörinn íþróttamaður Fjölnis þá nemandi í Rimaskóla. Hann varð 4 sinnum Norðurlandameistari með Rimaskóla.
Umf. Fjölnir óskar Oliver Aron til hamingju með þennan frábæra árangur og þakkar honum fyrir góða og eftirminnilega afmælisgjöf






Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.
Í dag 

Bergsveinn Ólafsson, fyrrverandi fyrirliði knattspyrnuliðs Fjölnis, er genginn í raðir félagsins á ný eftir tveggja ára veru hjá FH. Guðmundur Karl Guðmundsson er einnig kominn í Fjölni á ný frá FH eftir eins árs dvöl en hann var fyrirliði Fjölnis í eitt ár eftir að Bergsveinn fór í FH.
Fjölnir varð í kvöld Reykjavíkurmeistari karla í fótbolta í fyrsta skipti eftir 3:2-sigur á Fylki í úrslitaleik í Egilshöllinni. Þórir Guðjónsson skoraði öll mörk Fjölnis, það síðasta var sigurmarkið á 80. mínútu.


Getraunakaffi Fjölnis á laugardaginn milli kl. 10:00 og 12:00 í Egilshöll. Allir velkomnir! 
Á Heimsdegi barna gefst börnum og fjölskyldum tækifæri að taka þátt í fjölbreyttum smiðjum og ævintýrum í menningarhúsum Borgarbókasafnsins í Árbænum, Gerðubergi, Grófinni, Kringlunni, Sólheimum og Spönginni.




