Vorhátíð (uppskeruhátíð) handboltadeildar Fjölnis verður á laugardaginn 10. maí kl 16:00 í Dalhúsum. Skyldumæting fyrir iðkendur, þjálfara og foreldra eins og komist er að orði. Skemmtum okkur saman og gerum upp frábært tímabil. Það er ástæða fyrir handboltamenn í Grafarvogi að fagna lokum þessa tímabils enda árangurinn góður.
Þess má geta að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum var landað í hús um helgina. Efniðviðurinn er nægur og því ástæða til að líta björtum augum til framtíðar hvað handboltann áhrærir í Garfavoginum.