Það var ánægður vinningshafi sem kom í gær inn á skrifstofu knattspyrnudeildar Fjölnis með vinningsmiða í happdrætti deildarinnar.
Vignir Stefánsson, harður stuðningsmaður Fjölnis og enska liðsins Bristol Rovers, vann fyrsta vinninginn í happdrættinu sem var SAMSUNG HD-55 sjónvarp frá Ormsson að verðmæti 249.000 kr. Dregið var í happdrættinu hjá sýslumanninum í Reykjavík
Knattspyrnudeildin óskar Vigni og öðrum vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana.
Á myndinni er Kristján Einarsson formaður knattspyrnudeildar að afhenda Vigni sjónvarpið.