Vefmyndavélar sem starfsmenn Reykjavíkurborgar nota til að meta færð á götum borginnar eru nú aðgengilegar öllum á vefsíðunni reykjavik.is/vefmyndavelar
„Vefmyndavélarnar auðvelda okkur að meta færðina og taka ákvörðun um hvenær við köllum út snjóruðningstæki og saltbíla,“ segir Þröstur Ingólfur Víðisson yfirverkstjóri vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar í samtali á vef Reykjavíkurborgar.
„Þessi tækni bætir yfirsýn okkar og ákvarðanir um aðgerðir eru byggðar á betri upplýsingum. Við náum að bregðast fljótar við og skilvirkari vinnubrögð spara fé“.
Þröstur segir að líta megi á vefmyndavélarnar sem aukna þjónustu við borgarbúa og því hafi verið tilvalið að ganga alla leið og gera þær aðgengilegar á vefnum.
Snjóþungi réð staðsetningu myndavélanna
Vefmyndavélar Reykjavíkurborgar eru á átta stöðum með tveimur linsum hverjum stað sem skilar sér í sextán sjónarhornum eða vefmyndum. Staðsetning vélanna tók mið af því hvar snjóþungi hefur verið mestur í borginni undanfarin ár.
Reykjavíkurborg og Vegagerðin eiga í góðu samstarfi og er öllum vefmyndavélum miðlað á vefi beggja. Vélar Vegagerðarinnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum með alls þrettán linsum eða sjónarhornum. Áhugafólk um færð í Reykjavík getur nú valið milli 29 mynda eða sjónarhorna á götur í Reykjavík.
Vélar borgarinnar eru af gerðinni Mobotix og er þeim komið fyrir í um sex metra hæð. Þær eru knúnar rafmagni frá ljósastaurum borgarinnar og sólarrafhlöðum sem hlaða á rafgeyma. Reynslan frá því síðasta vetur og frá því í sumar sýnir að þetta er fullnægjandi til að halda vélunum gangandi árið um kring.
Þröstur segir að rekstrarkostnaður sé lítill. Vélarnar þurfa lítinn straum og myndir eru sendar yfir farsímakerfið á nokkurra mínútna fresti, en engar upptökur eru gerðar. „Vélarnar sönnuðu gildi sitt afdráttarlaust síðasta vetur, gáfu betri yfirsýn og minnkuðu akstur umtalsvert,“ segir Þröstur.
Nánari upplýsingar: