Tveir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Grafarvogsprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Embættið veitist frá 1. maí nk.
Umsækjendurnir eru séra Guðrún Karls Helgudóttir og mag.theol. Helga Kolbeinsdóttir.
Frestur til að sækja um embættið rann út 11. mars sl. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts.