Á föstudaginn kemur 4. nóvember opnum við fyrir sölu á okkar árlega Þorrablót sem haldið verður 21. janúar 2017 í Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum.
Við verðum eingöngu með 12 manna borð í ár, verðið í forsölu er 8.900 pr. mann = 106.800 kr. borðið en hækkar í 9.990 = 119.880 eftir 16. desember.
Miðar á ballið eru seldir í Hagkaup Spönginni, verðið er 2.900 kr. pr. mann
Borðin eru seld í gegnum Nóra skráningarkerfi félagsins https://fjolnir.felog.is/
Borðapantanir eru hjá starfsmönnum félagsins, hægt er að senda tölvupóst á thorrablot@fjolnir.is eða hringja í síma 578-2700 á símatíma mánudaga – fimmtudaga frá 9:00 – 12:30.
Ath. við tökum ekki frá borð, þau eru aðeins bókuð þegar búið er að kaupa borðin.
Kveðja starfsfólk skrifstofu Fjölnis