Iðkendum fimleikadeildar sem eru skráð í keppnishóp fyrir haustönn 2017 (fædd 2009 eða fyrr) stendur til boða að æfa fimleikaæfingar í sumar. Boðið verður upp á æfingar í áhalda- og hópfimleikum í júní og ágúst.
Verðskrá miðast við fjölda æfingatíma og eru þeir mismunandi milli greina og hópa. Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi skjölum.
Ef þið óskið eftir nánari upplýsingum eða hafið spurningar þá hvetjum við ykkur til þess að hafa samband við skrifstofu.