Sr.Guðrún Karls ætlar að prédika í páskamessunni í Grafarvogskirkju kl. 8 og sr. Vigfús Þór Árnason þjónar. Prédikunin heitir „Veggur vonar, ofbeldi og upprisa“. Þar kemur hrelliklám m.a. við sögu. Björg Þórhallsdóttir, sópran syngur. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og fiðluleikari er Matthías Stefánsson.
Kl. 13 verður Selpáskamessa í kirkjuselinu. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar. Vox Populi syngur ásamt Regínu Ósk. Organisti er sjálfur Hilmar Örn.