Fjölnismenn mæta Víkingum í níundu umferð Pepsídeildar karla í knattspyrnu á Víkingsvelli í kvöld og hefst viðureign liðanna klukkan 19.15. Staða Fjölnis er vænleg í deildinni en liðið hefur leikið frábærlega vel til þessa og situr í þriðja sætinu með 17 stig. FH er efst með 20 stig og Breiðablik kemur í humátt á eftir með 19 stig í öðru sætinu.
Með sigri í gegn Víkingum gætu Fjölnismenn komist upp að hlið FH-inga á toppnum í deildinni. Það rík ástæða til að hvetja stuðningsmenn Fjölnis sem og Grafarvogsbúa til að fjölmenna á leikinn og hvetja liðið til sigurs.