Sannkallaður stórleikur er í Pepsídeild karla í knattspyrnu í kvöld en þá leiða saman hesta sína Fjölnir og Valur.Fjölnir hefur hafið deildina af miklum krafti og unnið fyrstu tvo leikina, gegn Víkingi og Þór fyrir norðan, og trónir liðið í efsta sæti deildarinnar ásamt Keflavík og Stjörnunni. Leikur Fjölnis og Vals hefst á Fjölnisvelli klukkan 19.30. Allir aðrir leikir í 3. umferð deildarinnar fara fram á mánudagskvöldið.
Grafarvogsbúar eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og hvetja sitt lið til dáða.