Stórleikur er hjá Fjölnismönnum í knattspyrnunni í kvöld þegar liðið mætir Valsmönnum í undanúrslitum á Reykjavíkurmótinu. Fjölnismenn hafa leikið á köflum ágætlega til þessa á mótinu og er ljóst að um jafna og spennandi viðureign verður um ræða gegn Hlíðarendapiltum í Egilshöllinni. Leikur liðanna hefst klukkan 18.45.
Athygli skal vakin á því að ekkert kostar á leikinn og verður hann einnig á beinni útsendingu á Sporttv.is. Grafarvogsbúar er hvattir til að fjölmenna og hvetja sína menn til dáða.