Stólpi Gámar eru hluti af Stólpa ehf. sem er gamalgróið fyrirtæki sem hóf starfsemi sína 1974. Aðaleigandi fyrirtækisins til ársins 1999 var Þorlákur Ásgeirsson en núverandi aðaleigandi og framkvæmdastjóri er Ásgeir Þorláksson.
Athafnasvæði Stólpa Gáma er að Klettagörðum 5 í Reykjavík en þar fer fram sala og leiga á gámum svo og viðgerðir og endurbætur á stálgámum, einkum þurrgámum, opnum gámum og gámafletum.
Stólpi Gámar bjóða til sölu flestar gerðir og stærðir af notuðum og nýjum gámum, s.s geymslugáma, kæli- og frystigáma, einangraða gáma, fleti og tankgáma.
Stólpi Gámar eru einnig með til leigu gáma sem nýtast vel sem geymsla undir lager, fyrir árstíðabundnar vörur og búslóðir. Gámarnir eru í stærðunum 6, 8, 10, 20 og 40 feta. Viðskiptavinum býðst að geyma gáminn á lokuðu svæði fyrirtækisins við Óseyrarbraut Hafnarfirði.
Hjá Stólpa Gámum er einnig hægt að leigja gámahús til ýmissa nota, t.d. fyrir kaffistofur, skrifstofur eða viðbótar gistirými fyrir aðila í ferðarþjónustu. Einnig býður fyrirtækið WC einingar sem koma með öllum tækjum og lögnum og eru tilbúin til notkunar.