FJÁRHAGSAÐSTOÐ
Fjárhagsaðstoð stendur þeim til boða sem hafa tekjur og eignir undir ákveðnum viðmiðunarmörkum. Aðstoðin getur verið styrkur eða lán. Fjárhagsaðstoð skiptist í tvo meginflokka; framfærslustyrk og heimildagreiðslur.
Framfærslustyrkur
Framfærslustyrkur er veittur einstaklingum og fjölskyldum sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna. Einnig er hún óháð kostnaði vegna húsnæðis þar sem vaxtabætur og húsaleigubætur mæta mismunandi kostnaði.
Heimildagreiðslur
Heimildagreiðslur eru veittar einstaklingum og fjölskyldum vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna sérfræðiaðstoðar, náms eða óvæntra áfalla.
Fyrir hverja er þjónustan?
Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili í Reykjavík og hafa tekjur og eignir undir ákveðnum viðmiðunarmörkum. Aðstoðin getur verið í formi láns eða styrks.
Hvaða skilyrði þarf að uppfylla?
Fjárhagsaðstoð er veitt til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem hafa tekjur á eða undir viðmiðunarmörkum. Heimildir eru til styrkja eða láns vegna sérstakra aðstæðna.
Umsækjandi og maki/sambúðaraðili skulu einnig kanna til þrautar rétt til annarra greiðslna áður en leitað er eftir fjárhagsaðstoð, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Hafi umsækjandi sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, er heimilt að skerða fjárhagsaðstoðina um helming mánuðinn sem atvinnutilboðinu var hafnað og næsta mánuð á eftir.
Umsækjandi þarf að tilkynna um breytingar á tekjum og fjölskylduaðstæðum, en slíkar breytingar geta haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er alltaf endurkræf.
Upplýsingar um umsóknarfresti og móttöku umsókna:
Umsóknareyðublöð má nálgast á þjónustumiðstöðvum.
Umsókn gildir að öllu jöfnu frá þeim degi sem beiðni berst um aðstoð (eða umsókn er lögð fram).
Dagsetja skal umsókn um fjárhagsaðstoð frá síðustu mánaðamótum og skoða jafnframt tekjur frá mánaðamótum á undan til að athuga hvort þær hafi verið hærri en viðmiðunartekjur. Framfærsla umsóknarmánaðar skerðist um þá fjárhæð.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Umsókn skal útfyllt á sérstöku umsóknareyðublaði, þar sem fram koma upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka og barna á framfæri. Umsækjandi fær upplýsingar á þjónustumiðstöð um hvaða gögnum skal skila með umsókn.
Öll fjárhagsaðstoð til framfærslu er skattskyld og af henni er reiknuð staðgreiðsla skatta. Þess vegna er nauðsynlegt að skila inn skattkorti.
Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann nýta sér þann rétt og aðeins eiga rétt á leiðréttingu að viðmiðunarmörkum. Til þess þarf hann að framvísa launaseðli eða greiðsluyfirliti frá atvinnuleysistryggingasjóði.
Hafi viðkomandi ekki hafið atvinnuleit hjá Vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil.