FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
Ráðgjöf við einstaklinga og fjölskyldur miðar að því að koma til móts við einstaklingsbundnar þarfir þeirra sem leita til þjónustumiðstöðvanna. Einnig veita ráðgjafar upplýsingar um möguleika á þjónustu utan þjónustumiðstöðvanna og vísa fólki á þau úrræði sem henta hverjum og einum. Markmið ráðgjafarinnar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu. Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar vegna atvinnuleysis, veikinda, húsnæðisleysis, fjárhagsvanda, fötlunar, öldrunar, málefna útlendinga, málefna barna og ungmenna, fjölskylduvanda og áfengis- og vímuefnavanda.
Markmið með félagslegri ráðgjöf er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar.
Félagsleg ráðgjöf tekur meðal annars til ráðgjafar vegna:
•Atvinnuleysis
•Veikinda
•Húsnæðisvanda
•Fjárhagsvanda
•Fötlunar
•Öldrunar
•Málefna útlendinga
•Málefna barna og ungmenna
•Fjölskyludvanda
•Áfengis- og vímuefnavanda
Hvaða skilyrði þarf að uppfylla?
Allir með lögheimili í Grafarvogi, 18 ára og eldri sem þurfa á ráðgjöf eða upplýsingum um félagsleg réttindi eða þjónustu að halda geta leitað Miðgarðs.
Upplýsingar um umsóknarfresti og móttöku umsókna
Félagsráðgjafar taka á móti beiðnum um félagslega ráðgjöf á opnunartíma Miðgarðs.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Ekki þarf að skila sérstökum gögnum nema félagsráðgjafa þyki það ákjósanlegt með hliðsjón af aðstæðum.
Hvað kostar þjónustan?
Þjónustan er íbúum að kostnaðarlausu.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Almennum kvörtunum/ábendingum er hægt að koma á framfæri símleiðis eða í móttöku Miðgarðs.
Hvernig eru kærur meðhöndlaðar?
Þar sem um samkomulag er að ræða sem notandi gerir við félagsráðgjafa sinn er ekki hægt að áfrýja/kæra málsmeðferð. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri við framkvæmdastjóra Miðgarðs.